Frelsi, fríðindi og framandi staðir!

mánudagur, ágúst 28

Home from NY og nýja tölvan alveg að gera sig!!!

Jæja, New York ferðin var eins og við mátti búast, frábær í alla staði!
Við karlar komumst í uppáhalds borgina okkar og fylltumst mikillar orku að hætti stóra eplisins. Fórum á uppáhalds staðina okkar, borðuðum góðan mat og kíktum eilítið í búðir líka. Stutt og laggott eins og sagt er :)
En New York verður án efa borgin mín. Þarna líður mér eins og heima.....

Sit annars upp í rúmi með nýju vinkonu minni Dell D420.
Þvílíkur lúxus!!! Lítil og nett, tengist við netið hvar sem er og hraðvirk líka. Haldiði að hún huggi mann líka á slæmum degi???

|

þriðjudagur, ágúst 15

Gay Pride á enda og haustið tekur við...

Já helgi ársins er liðin og haustið farið að renna í garð. Gay Pride 2006 tókst að venju með príði, enda ekki við öðru að búast á gleðidegi eins og þessum :) Við karlar skelltum okkur í göngu um daginn og drifum okkur svo út að borða um kvöldið. Rómantíkin í hámarki hjá okkur, hehe!
Skutlðuðumst svo snöggt heim til að henda sér í djamm fötin og svo bara ball! Vorum búnir að safna að okkur hópi vina til að tjútta með um nóttina.....Eftir langa bið í röð komst helmingur hópsins loks inn, tveir og hálfur hommi og dönsuðum fram á rauðan morgun! Stuð, stuð, stuð!!!
Er ekki alveg frá því að ég hafi verið svoldið eftir mig í gær í flugi :)

Ágústmánuður er þó hálfnaður og skólinn handan við hornið. Mikil tilhlökkun er komin í kappa, enda langt síðan hann settist á skólabekk. Það er bara að vona að mér takist að samræma þetta með fluginu, því Dúskur mun allavega vera í háloftunum út septembermánuð :) (vonandi meir)
En að lokum langar mig að óska manninum mínum til hamingju með nýju stöðuna. Í dag er fyrsti dagurinn hans á nýjum vinnustað, þar sem hann mun bráðlega gerast verslunarstjóri!
Til hamingju elskan mín! Ég er stoltastur í öllum heiminum :)

|