miðvikudagur, mars 1

Straight eye for the queer guy!

Miðvikudagur og vikan nánast hálfnuð. Leið ótrúlega hratt, enda er það fyrir mestu.
Ákvað eftir miklar pælingar að breyta um útlit á síðunni, annarsvegar var hún orðinn hálf lúin og eitthvað farin að klikka og hinsvegar var kominn tími á gott makeover. Var þetta allt gert í anda útlitsbreytinga höfundar sem hann gerði í seinustu viku.
Eftir mikið basl og busl varð útkoman þessi en eftir er að setja inn linka og annað tilheyrandi.....

Framundan er svo árshátið KB samsteypunar. Hún verður haldin í glæsilegu húsnæði nýju Laugardalshallarinnar laugardaginn n.k. Tilhlökkun ríkir í mannskapnum í vinnunni, en ég í vandræðum með í hverju ég á að klæðast..........Já, útlitsbreytingar urðu á mér sjálfum fyrir helgi, svo blogginu, er spurning að finna útlitsbreytingu fyrir gott outfit á galakvöld???

|