Ef ég væri ríkur....
- myndi ég ferðast um allan heiminn og sjá framandi lönd
- myndi ég borða úti einu sinni í viku
- myndi ég kaupa mér flott hús
- myndi ég kaupa mér bæði jeppa og fólksbíl
- myndi ég setja upp mitt eigið fatamerki
- myndi ég lifa af listinni, hanna, syngja og vera til
- myndi ég leggja stundir á nám út í hið óendanlega
- myndi ég geta styrkt gott málefni og það almennilega
- myndi ég gefa vinum og vandamönnum gjafir
- myndi ég fá einkajálfara, matreiðslumann og næringarráðgjafa heim til mín til að gera mig bæði flottan og heilsusamlegan
- myndi ég fara í lýtaraðgerð þegar mér hentaði, bara til að laga smá líkamsgalla
- myndi ég kaupa mér frægð og frama
- myndi ég kaupa mér ást og vináttu
- myndi ég verða hrokafullur og eigingjarn
- myndi ég tapa öllu mínum lífsgildum
- myndi ég verða einmana
- myndi ég týna sjálfum mér
guð sé lof að ég er ekki ríkur......
|
<< Home