sunnudagur, mars 12

Hor, hósti og nýklárað blogg...

Já loks tókst mér að klára þessa blessaðins síðu og setja inn það sem vantaði........ekki seinna en vænna! Vonandi að ykkur finnist hún sóma sér vel.....
Annars ekki mikið að segja frá. Er búinn að liggja heima í næstum viku í pest og ógeði! Já, týpiskt að þegar flensunar eru að ganga yfir landið að ég þurfi að næla mér í þær.....Ekki sniðugt!
Dúskurinn búinn að vera handónýtur hérna heima fyrir svo Nallinn er búinn að vera að hugsa um hnoðrann sinn :) Já, furðulegt hvað maður getur orðið lítill í sér við það eitt að veikjast.
En bloggfærslunum hefur fækkað eitthvað undanfarið og á því verður breyting!
Kippi því í lag um leið og kvefið yfirgefur þennan bæ........

Þangað til næst, hress og frísk!

|