föstudagur, apríl 8

Vikan leið hratt en pest að ganga

Já vikan bara að enda og helgin í vændum, en einhver slappleiki búinn að vera í fólki. Ég er sjálfur búinn að vera frekar þreytulegur og slappur, kallt og með stanlausan hausverk. Komst að því að þetta var að hrjá fleiri en bara mig. Já líklegast enn ein pestin að ganga.
Allavega sit ég hérna í vinnunni og glápi hér á tölvuskjána mína. Dreymir um rúmið mitt og algjöra þögn! Mmmmmm já þvílík unun. Ég er eitthvað svo utan við mig í dag og seinustu daga að ég hef varla verið viðræðu hæfur. Ekkert að angra mig, bara svona paff bara og gjörsamlega slow í hausnum.

Það er allt á fullu í fluffuskólanum og er þetta að leið að síga á sitt seinasta. Þó svo að þetta sé það skemmtilegasta sem við erum að gera um þessar mundir þá er farin að koma þreyta í liðið. Sem betur fer er góður andi innan hópsins og náum við vel saman og því er þetta ennþá tilhlökkunarefni fyrir hvert kvöld :)

......................................farinn heim!

|