föstudagur, apríl 1

Fluffos tjúttos end year festival!

Hola chica og chicos!!!
Bara komin helgi og allt að gerast. Átti þennan magnaða dag í gær að það hálfa væri nóg. Við fluffurnar eyddum saman frábærri stund um borð í flugvélum Icelandair í Keflavík fram á nótt. Um var að ræða öryggisþjálfun í vélunum og var þetta hið skemmtilegasta moment. Mikið hlegið, mikið fiflast og mikið tekið af myndum. Sem sagt almenn gleði bara!
Við vorum öll orðin frekar lúin eftir langt kvöld og vildum ólm komast heim.....þó svo að þetta hafi verið það næsta sem við gátum komist að sitja á Saga Class :)

Svo í kvöld verður sko djammað og djúsað. Við fluffulufsurnar ætlum að tapa okkur í mikilli gleði og stuði, salsa og margaritas, bjór og snafs, hvítvín og vodka, kjúlli og ostar og skolum þessu niður með smá tequila! Ég vona bara að við stöndum ennþá í lappirnar í kringum miðnætti..........Þetta verður örygglega rosa gaman og planið er að halda sig heima fyrir og sleppa bænum.......dansað fram á rauða nótt :)

Svo er það stóri dagurinn, eða réttara sagt dagur ársins fyrir okkur starfsfólk KB. Year festival of the century!!! Ætla ekki að eyða of mörgum orðum á þetta fyrr en daginn eftir, en ég get lofað ykkur því að þetta verur CRAZY!!!
Jæja, klukkan orðin of margt og ég nenni ekki að vinna meir. Spurning að fara koma sér heim.
Skjáumst soon, vonandi ekki of þunn..........

Rrrrrrrrrrrriiiiiiiiiaribaaaaaa!!!!!!!!!!!!!!

|