föstudagur, febrúar 25

Spádómsspil dagsins:

IV - Keisarinn

Þroski, áræðni, dugnaður, sjálfstæði og ekki síður reynsla þín kemur hér fram. Stöðuhækkun sem tengist starfi eða nýtt starf kann að vera framundan hjá þér. Þú stendur frammi fyrir tækifæri sem sjaldan birtist og ættir að kanna möguleika framtíðarinnar gaumgæfilega. Ásetningur þinn og ekki síður skipulag og hagkvæmni mun leiða þig næstu misseri að settu marki. Nýttu þér lögmálið um velgengni og sjáðu hvernig innri máttur þinn og orka umhverfisins hjálpar þér. Velferð náungans kemur þér lengra en þig grunar.

6 sverð

Eitt stærsta verk þitt er að yfirstíga hræðsluna sem býr innra með þér við varnarleysi og afhjúpun. Þú ert minnt/ur hér á að þú ert ekki fær um að öðlast hamingju í sambandi fyrr en þú horfist í augu við ótta þinn gagnvart framtíðinni og jafnvel skuldbindingu. Þú ert fær um að leiðbeina öðrum samkvæmt eigin sannfæringu og kennir náunganum að leita svara við spurningum tilverunnar en átt það til að gleyma að hlusta á eigið hjarta sem kallar hér á athygli þína því unaðsstundir bíða þín þar sem þú hlúir með ástúð að sálu þinni með því að gefa andanum innra með þér nánari gaum.

Stjörnuspá 2005

Peningar skipta þig mjög miklu máli árið framundan en í þínum huga eru þeir eingöngu tæki til að öðlast og viðhalda sjálfstæði þínu. Þrautseigja, ástríða og trúmennska í bland við góðsemi lýsir þér best árið 2005.

|