sunnudagur, nóvember 16

Ég kveð djammið í bili................

Jæja góðir lesendur, núna er komið að því að ég fari að draga mig í hlé. Hmmmmmmmmm..........OK, svoldið dramatískt, er nú bara að tala um að chilla á djamminu í bili. Allavega þangað til ég byrja á því næst :) Ég meina vá!
Erum að tala um það að minns hefur ekki farið á djammið í nokkur ár, þangað til bara núna upp á síðkastið, enda er ég búinn að gera það nánast allt í einni röð. En það er að koma jól og maður þarf víst að fara að passa peningabudduna og hætta þessu sukki. Hmmmmmmm, allavega fram að áramótum, hehe.
Anyways, þá var kíkt aðeins í bæinn á föstudagskvöldið í tilefni IDOL, en eins og flestum er kunnugt, allavega þeir sem þekkja mig og mína, þá var hún Thelma mín að syngja. Hún komst reyndar ekki inn í þetta skipti, en hver veit hvað gerist í dómaravalinu næsta föstudag :) Hún er allavega DIVA í okkar augum :)

Helgin búin að vera góð, voðalega róleg og afslappandi, sem er GOTT! Mmmmmm.........
Ég ætti kannski að halda áfram að slaka á. Bara liggja í leti og geri EKKI neitt. Já, ég geri það............
Tala bara við ykkur seinna.

Bæó! *hrjót*

|