þriðjudagur, október 28

C´est la vie!

Já og hvað svo?????
Sit hérna alveg kófsveittur og kafi í vinnu. Kúnnarnir raðast upp og allir orðnir pirraðir. Mér væri nær að fara bara heim og leggja mig......

Neinei, smá djók, það er ekkert að gera! Sit hérna og tel peninga sem ég má ekki hirða, neglurnar mínar eru orðnar nokkuð stuttar þar sem ég er farinn að naga þær á mér úr leiðindum. SPES! En hvað getur maður gert???
Annars er ég alveg viss um að ég sé að næla mér í einhverja pest. Vaknaði í morgun með þennan rosalega hósta, beinverki og höfuðverk. Sem er ekki gott. Hmmmm.......sólhattur og lýsi, það er málið núna.

En hvernig var svo helgin mín? Bara góð, fór á létt djamm.is á föstudagskvöldið. Thelma kom í heimsókn, við horfðum á IDOL og kíktum svo niður í bæ. Enduðum svo á Sólon og dönsuðum af okkur vitið :)
Á laugardaginn vaknaði ég "eldhress", til að vera viðstaddur brunch heima. Jói og félagar komu í heimsókn. Ég held að ég hafi dáið eftir það, því allavega datt ég um fatahrúguna við rúmið, tók nokkur heljarstökk og endaði undir sæng í öllum fötunum hrjótandi.

Um kvöldið fórum við karlar í heimsókn til sætu gæjana í 101. Takk fyrir seinast!!! Dívan gamla var náttlega þar líka. Alltaf jafn HOT, og looking good might I' add!!!! :)
En haldiði ekki að gamla þrenningin sé ekki að fara á svona reunion eftir tvær vikur. Við Jómbi ætlum bara að fara mála bæinn rauðan á meðan. :) En í raun ættum við að koma með þar sem við gætum kannski bætt aðeins heildarsvip þeirra gömlu til muna. En OK, það verður að hafa sinn gang, já.
Þau eru svo alveg viss um að allir eru orðnir feitir og sköllóttir. Pæliði í einu........Hvað ef allir eru bara fitt og mega sexy!!!! Hvað gera karlar og kerling þá???

|