föstudagur, nóvember 7

"Út á lífið"

Og bara kominn föstudagur. En ef maður fer að pæla aðeins í nafninu FÖSTUdagur, þá þýðir það í raun og veru að fasta. You know, ekki borða neitt :( Sem er EKKI gott. Anyways, smá innskot sko. Allavega er að koma helgi og ég get ekki beðið, ha! Spurning um að fara í bíó tonight............?
Úff, ég er á fyrri vakt í dag og líka þeirri seinni. Ætli maður verði dauður í kvöld.
Var einmitt að skoða bloggið hans Shoppaholic og haldiði ekki að karl sé ekki í barnahugleiðingum.......eða hitt þá heldur. En ég verð nú samt að vera honum sammála í þessu babystuff. Það er voðalega gott að getað skilað þessu dóti aftur þegar maður er kominn með leið á þessu :) Samt verð ég að viðurkenna að það væri ekkert voðalega leiðinlegt að hafa lítið kríli heima.............OK, jú, ekki að gera sig!!!

By the way!!!!!
Ætla að benda ðöllum á að hubby of mine er búinn að opna bloggsíðuna sína aftur og kominn á ról. Hann er einnig (með minni leiðsögn) búinn að flikka aðeins upp á stuffið. Að hætti Völu Matt að sjálfsögðu. "Hún gerir svo margt fyrir rýmið"
Endilega kíkið á þetta. Það gæti verið að að þar væri eitthvað gáfulegt.

|