miðvikudagur, október 22

Boooooooooring!!!

Mér leiðist ekkert smá. Þetta er alveg rosalegt. Skil ekki afhverju var verið að ráða annan gjaldkera hingað, þar sem að tveir af okkur sitjum hérna á bakvið og höfum nákvæmlega ekkert að gera. Búin að taka upp allar töskur, búin að fara yfir sjóðinn okkar, losa okkur við pening, ALLT! Þetta nær náttlega engum áttum sko. En það virðist ekki vera neinn millivegur hjá fyrirtækjum landsins í dag. Annað hvort eru allir reknir og allt undirmannað eða þá er yfirflæði af strfsmönnum og enginn hefur neitt að gera. Talandi um auka útgjöld!!!

Annars ætla ég að fara að drífa mig í kaffi, enda tími til kominn.
Heyrumst soon....................

|