laugardagur, nóvember 1

Wunderbar, wunderbar!!!

Hellú everybody. Einn hérna að vakna eftir erfiða og leiðinlega nótt. Úff, ég held að það sé komin tími fyrir mig að hætta þessu helvítis djobbi. Ég er náttlega búinn að vera röfla um það hérna á blogginu endalaust, en einhvern veginn ekki komist í það..............mmmmmmmm.
En allavega fékk ég alveg nóg í gær. Ój bara, kúnnar, leiðinlegt fólk sem heldur að það eigi heiminn. Komdu með kaffi, komdu með bjór, ég bað um matinn minn fyrir 5 min siðan!!!! Arrrrrrrrrrrrrrrrrrrrg!!!! Fuck off!!!
Alveg spurning um að skjóta fólk í hausinn.............eða kannski bara hætta þessu starfi. :)

Og svo er ég að fara að syngja á tónleikum 25. nóv. Eða ég er gestasöngvari réttari sagt. Það eru nemendatónleikarnir hennar Thelmu núna í nóv og ég var beðinn um að vera gestasöngvari. Við erum að fara æfa lag úr söngleiknum "Kiss me Kate" - Wunderbar!!! Æi og ég sem er svo muffaður eitthvað í röddinni þessa dagana :(
En mínir tónleikar verða ekki fyrr en í apríl á næsta ári, svo ég hef nógan tíma til að æfa fyrir þá. Svo er ég náttlega að fara í stigspróf líka. Svo þið sem hafið áhuga að sjá mig gaula eitthva, þá endilega látið sjá ykkur.

En talandi um seinasta bloggið mitt. Ég veit að ég var eitthvað hálf fojj yfir öllu þessu tilstandelsi yfir jólunum, en ég verð bara að vuðurkenna að ég hlakka ekkert smá til að fara byrja spila jólatónlistina, þótt ég ætla að halda aftur af mér framm yfir næstu mánaðarmót :) Er eitthvað skemmtilegra en að syngja jólalög.......gaman saman!!!

Jæja, ég ætla að hætta þessu núna, ætla að kíkja á imbann og deyja yfir honum þangð til næsta martröð hefst.
See ya all soon!

|