föstudagur, október 10

Hvað svo???

Jamm og jæja!
Hvað svo.............ég er ennþá að gera upp hug minn um þetta alltsaman. Þetta er ekki alveg að leggjast of vel í mig eins og kom fram áður. En ég er að reyna að vera bjartsýnn (þótt það gangi ekki of vel). Samt fékk ég smá von í­ gær.
Fékk nefnilega mail frá henni Kollu, þótt ég sé ekki alltof vongóður um að eitthvað jákætt gerist hjá henni, þá allavega fannst mér hlutir ekki vera eins glataðir. Ég verð bara að vona og biðja um kraftaverk.
En, útkoman er sú að það er ekki hægt að fá 5 þegar maður leggur 2 og 2 saman! (vá hvað maður er klikk)

Í kvöld er svo matarboð heima. Voða nice. Svo á ég eiginlega að fara að vinna á laugardaginn, en ég er ekki að meika það, þannig að ég ætla að sjá til.++

Ég læt ykkur vita ef einhverjar breytingar verða hjá mér.....

|