sunnudagur, október 5

Nema hvað....................!

Jæja krakkar! Halló öll sömul og verið marg blessuð og sæl.
Einhverjar nýjar fréttir af mínu umtalaða og spennandi lífi?
Well......................Haldiði ekki að karl sé bara kominn með vinnu. Svona gott sem allavega........
Fór í viðtal hjá Búnaðarbankanum í Kringlunni fyrir helgi, nema hvað...............bara fékk vinnuna. Á reyndar eftir að tala betur við starfsmannastjórann og skrifa undir starfssamning og fleira, þannig að ég er ennþá svoldið nettur með þetta. En ég meina vá, þetta gekk loksins! Þannig að til hamingju ég sjálfur og gangi mér vel í nýju vinnunni minni!

Svo var ég að vinna í hinni vinnunni um helgina, sem er ekki frásögu færandi. Var reyndar ekki eins slæmt eins og ég var búinn að gera upp í huga mínum, en OK. Látum það nú vera. Anyways, var voða gaman að hitta alla krakkana eftir langt og gott frí. Enda er maður jú svo rosalega popular, u know!!! :)

Jamm og jæja, vildi ekki neitt meira en þetta, langaði bara að haldi ykkur ennþá á vaktinni! Vonandi fæ ég fullt af hamingjuóskum í gestabókina mína (you better write something or else!!!).

By the way! Það er eitthvað voða spes í gangi með bloggsíðuna mína. Útaf einhverjum ástæðum er ekki hægt að browsa niður til að lesa meira. En kvíðið ei!!! Ég kann gott ráð. Minnkið bara explorer gluggan og stækkið hann aftur, þá ætti ekki að vera neitt mál að browsa lengra niður og fylgjast með öllum skemmtilegu ævintýrum sem ég er að lenda í alla daga!

Jæja love u all to DEATH, muahahahahaha!!!!!!
Dúskur

|