miðvikudagur, september 24

Annar dagur í eymd og volæði!

Jæja, svona er staðan: Ég er atvinnulaus og enn að væla um það, kominn heim og með þessa þvílíka útlandaþrá, er kominn með kvef og hálsbólgu dauðans og til að toppa allt þá er ég með harðspessur síðan ég fór á fimleikaæfingu í fyrradag. Hmmmmm, væl dauðans sko......... I grab my pearls and SCREAM!
O jæja, ætli maður reyni nú ekki að líta á björtu hliðarnar, sem eru reyndar ekki margar, en OK, ég reyni að vera hress.
Jæja.......

Ég er allavega byrjaður að syngja aftur. Enda gengur það bara vel miðað við allt sukk og svíneri *hóst* í sumar og tala ekki um allt eftir Kýpur ferðina. Fyndnasta við þetta allt er að bæði Sigga og Láru finnst röddin í mér hafa tekið eitthvað stökk, semsagt orðið einhverjar rosalegar framfarir. Ég verð nú þó að viðurkenna að ég hef ekki orðið var við þær :/ Yfirleitt finnst mér ég vera að öskra úr mér lungun þarna hjá þeim dag eftir dag. Oh well!

Ég er búinn að vera nokkuð duglegur að sækja um vinnu hér og þar og allstaðar. Enda gengur ekki annað en að ganga á eftir þessu, ekki satt? Spurning er bara hvort það fari ekki að berast einhver svör...................I hope!
En þetta er voða furðulegt að vera atvinnulaus. Mjög spes sko! En ef Guð leyfir þá verður það ekki mikið lengur.
En ég ætti nú samt að fara að nýta tímann í að fara að undirbúa möppuna sem ég ætla að senda út. Og fara að afla mér betur upplýsinga um hvar og hvenær ég á að sækja um. Þessi leti gengur ekki lengur!!! Bara S/M - taktar í gangi núna sko!

Pabbi og mamma eru að fara út í fyrramálið. Við Nalli værum sko alveg til í að fara með sko. London!!!! Þvílík snilld!
Helgin verður semsagt laus til að rasa smá úr, eða hitt heldur sko *blikk*
Datt í hug að chilla bara á föstudagskvöldið með Thelmu og Ölmu og horfa á IDOL. Allavega er planið að gengið (sko THE GANG) hittist hérna á laugardagskvöldið og eldi eitthvað saman og fístar svoldið. Enda tími til kominn, þar sem matarklúbburinn okkar varð til fyrir um ja..................tveimur árum síðan og ekkert almennilegt hefur verið í gangi þar.
No Jamie bloody Oliwer, darlings!!!!! Get your jings and get your jangs and start cooking!

Hmmmmmmmmm..........hvað meira??? Eiginlega ekkert, allavega ekki í bili. Enda læt ég ykkur vita ef svo fer.
Þangað til næst.
Veriði hress, ekkert stress og bless, bless!!!
Hmmmmmmm, OK let´s go extreme! :)

Follow this you bitches!!!!
Love Dúskur

|