miðvikudagur, ágúst 29

Helv. maðurinn var bara nice!!!

Ég varð fyrir þeirri skemmtilegu reynslu í fyrradag að myndarlegur ungur maður kom inn í flugvélina mína í einni af stórborgum Evrópu. Alveg fjallmyndarlegur, brúnn og sætur, 3 daga skegg og dökkhæðrur með bláustu augu sem ég hafði séð í langan tíma. Ég lét þetta svosem ekki á mig fá, þar sem mikið af myndar mönnum (og konum) koma inn í flugvélar fyrirtækisins daginn út og inn, og svo auðvitað sú staðreynd að ég er harðgiftur maður!
Það var ekki fyrr en hann staðnæmdist fyrir framan mig og brosti sínu breiðasta brosi, hlýlegt og sætt með skjannahvítar tennur. Svo tók hann upp sælgæti og rétti mér, blikkaði mig og hélt svo áfram niður farðþegarýmið. Eftir stóð flugþjónninn kjánalegur með sælgætið upp í sér, roðinn í framan.

Fyrir okkur sem eiga okkar örugga förunaut heima fyrir til margra ára, þarf ekki mikið til að gleðja okkar litla hjarta og egóið kippist til og stækkar ögn í smá tíma eftir á. En ég skildi við manninn í lok flugs. Mér til mikilla vonbrigða yrti hann né leit varla á mig á 3 klst eða allt flugið. Mér var ljóst að kannski.......já kannski, var hann bara nice og örlátur á sælgætið sitt. Mér gramdist þessi tilhugsun og varla kvaddi hann þegar hann fór frá borði. Ég vona að hann hafi náð hintinu og skammast sín fyrir framkomu sína!

Annars ligg ég upp í rúmi með einum sem pikkaði mig upp fyrir mörgum árum síðan.......og hann gerði gott betur en BARA bjóða mér upp á sælgæti og blikka mig!!!

|